Stefnir í 50 þúsund gesti í Jarðböðin í Mývatnssveit í ár

Fyrstu átta mánuði þessa árs erum gestir í Jarðböðin í Mývatnssveit rétt um 45 þúsund talsins.
Fyrstu átta mánuði þessa árs erum gestir í Jarðböðin í Mývatnssveit rétt um 45 þúsund talsins.
Rekstur Baðfélags Mývatnssveitar ehf., sem Kaupfélag Eyfirðinga á 22,5% hlut í, hefur gengið ágætlega á þessu ári, að sögn Stefáns Gunnarssonar, forstöðumanns Jarðbaðanna, og að óbreyttu verður rekstrarniðurstaða ársins í takt við áætlanir, en þetta er fyrsta heila rekstrarár Jarðbaðanna við Mývatn.Rekstur Baðfélags Mývatnssveitar ehf., sem Kaupfélag Eyfirðinga á 22,5% hlut í, hefur gengið ágætlega á þessu ári, að sögn Stefáns Gunnarssonar, forstöðumanns Jarðbaðanna, og að óbreyttu verður rekstrarniðurstaða ársins í takt við áætlanir, en þetta er fyrsta heila rekstrarár Jarðbaðanna við Mývatn. “Það hefur verið ágæt aðsókn á þessu ári. Á þessum fyrstu átta mánuðum ársins eru gestirnir um 45 þúsund og við gerum ráð fyrir því að heildarfjöldi gesta á árinu verði um 50 þúsund. Í sumar hafa um 60% gesta verið útlendingar og um 40% Íslendingar, en síðan snýst þetta hlutfall við yfir vetrarmánuðina,” segir Stefán. Á því rúma ári sem Jarðböðin hafa verið rekið er óhætt að segja að þau sé rækilega komin á kortið í hérlendri ferðaþjónustu. Stefán segir engan vafa á því að rekstur Jarðbaðanna sé mikilvægur stuðningur við aðra ferðaþjónustu í Mývatnssveit. Í júní sl. var búningsaðstaða við Jarðböðin stækkuð með uppsetningu útiklefa. Þessi viðbót hefur nýst mjög vel á álagstímum í sumar, að sögn Stefáns. Þá er búið að leggja veginn að Jarðböðunum, frá þjóðvegi eitt, bundnu slitlagi og bróðurpart bílastæðanna við böðin. Stefán Gunnarsson segir að í sínum huga sé enginn vafi á því að unnt sé að byggja ofan á þann grunn sem þegar sé kominn með Jarðböðunum við Mývatn. Þannig sé hafin undirbúningsvinna vegna mögulegrarar meðferðarstofnunar sem yrði komið á fót í tengslum við böðin í samvinnu við Heilsustofnun Þingeyinga. Þessi hugmynd hefur verið kynnt ráðamönnum og næsta skref er að vinna viðskiptaáætlun vegna verkefnisins og útkoma hennar ræður töluverðu um framhaldið. Stefán nefnir að í haust, september og október, sé von á stórum hópum Japana í Jarðböðin, en hér er um að ræða sex bein flug frá Japan til Íslands á breiðþotum. Stefán segir að gert sé ráð fyrir að bróðurpartur Japananna komi í heimsókn norður í land og hluti af dagskránni sé baðferð í baðlón Jarðbaðanna við Mývatn.