Undirbúningur Vaðlaheiðaganga í fullum gangi

Undirbúningsvinnu vegna gerðar jarðganga undir Vaðlaheiði miðar vel og er unnið að þeim á mörgum vígstöðvum. Á aðalfundi Greiðrar leiðar ehf., framkvæmdafélags vegna gerðar Vaðlaheiðarganga, á Akureyri 29. júní, var gerð grein fyrir stöðu undirbúningsvinnu vegna jarðgangagerðarinnar það sem af er þessu ári.

Meðal þess sem fram koma á fundinum var að skýrsla sem unnin var af RHA  leiðir í ljós að þjóðhagslegur heildarábati af jarðgangagerðinni er um 1,2 milljarðar króna, þ.e. ábatinn er á núvirði tæpum 1,2 milljörðum kr. hærri en kostnaðurinn við framkvæmdina.  Einnig kom fram að Greið leið hefur unnið kynningarskýrslu um jarðgöngin og vegtengingar við gangamunnana á Svalbarðsströnd og í Fnjóskadal og er hún nú til skoðunar í Skipulagsstofnun. Beðið er umsagna nokkurra aðila um skýrsluna og í framhaldinu mun Skipulagsstofnun taka afstöðu til þess hvort jarðgangagerðin þarf að fara í mat á umhverfisáhrifum.
Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA og stjórnarmaður í Greiðri leið segir að  undirbúningur vegna framkvæmdarinnar hafi gengið vel og að næsta skref sé  að þrýsta á að Vaðlaheiðagöng verði sett á vegaáætlun enda sé það forsenda þess að framkvæmdir geti hafist.

Sjá nánar af aðalfundi Greiðrar leiðar ehf.