Undirrituðu viljayfirlýsingu um uppbyggingu líknardeildar á Akureyri.

Tólf einstaklingar skrifuðu undir viljayfirlýsinguna í dag. Á myndinni eru frá vinstri: Hrefna H. Ha…
Tólf einstaklingar skrifuðu undir viljayfirlýsinguna í dag. Á myndinni eru frá vinstri: Hrefna H. Hagalín, frá Oddfellowreglunni á Akureyri, Ingvar Þóroddsson, læknir, og Benedikt Sigurðarson, formaður stjórnar KEA.
Í dag rituðu fulltrúar félagasamtaka og fyrirtækja á Akureyri undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu líknardeildar á lóð Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Á Akureyri hefur lengi verið brýn þörf á að byggja upp deild fyrir líknandi meðferð og hefur hópur áhugafólks unnið að því verkefni á síðustÍ dag rituðu fulltrúar félagasamtaka og fyrirtækja á Akureyri undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu líknardeildar á lóð Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Á Akureyri hefur lengi verið brýn þörf á að byggja upp deild fyrir líknandi meðferð og hefur hópur áhugafólks unnið að því verkefni á síðustu misserum. Með undirritun viljayfirlýsingarinnar hefur verið stigið stórt skref í að koma verkefninu á framkvæmdastig og jafnframt hefur því verið markaður ákveðinn farvegur. Við það er miðað að hús líknardeildarinnar verði sem næst 350 fermetrar að stærð með sex rýmum. Áætlaður kostnaður við byggingu hússins og kaup á nauðsynlegum búnaði er um 80 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að líknarfélög standi að baki allt að 40% byggingarkostnaðar og Kaupfélag Eyfirðinga og Sparisjóður Norðlendinga leggi verkefninu einnig lið fjárhagslega. Kaupfélag Eyfirðinga hefur þegar lagt fram eina milljón króna til nauðsynlegrar undirbúningsvinnu. Sem stendur fer líknarmeðferð fram á bráðadeildum Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og í heimahúsum. Af ýmsum ástæðum fer starfsemi bráðadeilda sjúkrahúsa og líknandi meðferð ekki vel saman. Líknandi meðferð krefst annars umhverfis en unnt er að bjóða upp á á bráðadeildum og meðferðin er á margan hátt frábrugðin starfsemi bráðadeilda. Líknardeildir eru sérhannaðar með þarfir mikið veikra og deyjandi sjúklinga í huga og gera auk þess ráð fyrir fjölskyldum þeirra. Á líknardeild koma sjúklingar til mislangrar dvalar og fara svo aftur heim eða eru þar til yfir lýkur. Hér er ekki eingöngu um að ræða sjúklinga með krabbamein heldur einnig með aðra langvinna ólæknandi sjúkdóma svo sem langvinna lungnateppu, hjartabilun, nýrnabilun og ýmsa taugasjúkdóma. Undanfarin ár hefur starfsfólk Heimahlynningar á Akureyri annast líknandi meðferð í heimahúsum á Akureyri og nágrenni. Gert er ráð fyrir að Heimahlynning taki að sér rekstur líknardeildarinnar, náist um það samningar við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og Tryggingastofnun. Jafnhliða mun Heimahlynning sinna hjúkrunarþjónustu í heimahúsum, eins og verið hefur. Undir viljayfirlýsinguna rituðu: Héðinn Jónasson, Erla Hallgrímsdóttir og Árni V. Friðriksson frá Lionshreyfingunni á Akureyri, Bryndís Þórhallsdóttir frá Heimahlynningu Akureyrar, Bryndís Arnardóttir og Þuríður Schiöth frá Soroptimistaklúbbi Akureyrar, Benedikt Sigurðarson, stjórnarformaður KEA, Sigrún Skarphéðinsdóttir, Sparisjóði Norðlendinga, Ingvar Þóroddsson, læknir á FSA, Kolbeinn Sigurbjörnsson, Bjarni Jónasson og Hrefna H. Hagalín frá Oddfellowreglunni