Úthlutun úr Háskólasjóði KEA

Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Akureyrarbæjar, afhentu í dag styrki úr Háskólasjóði KEA við athöfn sem fram fór á Sólborg, húsnæði Háskólans á Akureyri við Norðurslóð.

Að þessu sinni voru veittir níu rannsóknarstyrkir en nítján umsóknir bárust sjóðnum. Við úthlutun úr sjóðnum er horft til þess að verkefnin tengist starfsemi skólans. Einnig hlutu þrír nemar viðurkenningu fyrir góðan námsárangur við brautskráningu fyrr um daginn. Þetta er í ellefta sinn sem úthlutað er úr Háskólasjóði KEA og var heildarupphæð styrkja 4,1 mkr.


Eftirtalin rannsóknarverkefni fengu styrk úr Háskólasjóði KEA:

Fagmennska í skólastarfi: Skrifað til heiðurs Trausta Þorsteinssyni
Hug- og félagsvísindasvið  - Rúnar Sigþórsson, Rósa Guðrún Eggertsdóttir og Guðmundur H. Frímannsson     
Kr. 200.000,-

NÝR FLÖTUR
Viðskipta- og raunvísindasvið Rannveig Björnsdóttir         
Kr. 300.000,-

Áhrif ACE hamlara og Angiotensin II antagonista á samdrátt slagæðlinga í sjónhimnu              
Hug- og félagsvísindasvið  Ársæll Már Arnarsson                         
Kr. 400.000,-

Hverastrýturnar í Eyjafirði - Lífríkið neðansjávar
Viðskipta- og raunvísindasvið - Hreiðar Þór Valtýsson
Kr. 400.000,-

Netávani  íslenskra unglinga og forvarnir
Hug- og félagsvísindasvið  - Kjartan Ólafsson og Ólína Freysteinsdóttir
kr. 400.000,-

Samfélagslegt hlutverk háskóla
Hug- og félagsvísindasvið  - Trausti Þorsteinsson
kr. 500.000,-

Sjónvarpsþáttur Ara Trausta
Markaðs og kynningarsvið-  HA
kr. 500.000,-

Röntgentækni til greiningar á frumefnainnihaldi þangs
Viðskipta- og raunvísindasvið - Ásta Margrét Ásmundsdóttir
kr. 600.000,-

Alfapróteógerlar og veirur þeirra úr Jökulsá á Fjöllum
Viðskipta- og raunvísindasvið Oddur Vilhelmsson
kr. 700.000,-

Eftirtaldir hlutu viðurkenningar fyrir góðan námsárangur:

Viðskipta- og raunvísindasvið:
Kristín Baldvinsdóttir
Kr. 50.000,-

Heilbrigðisvísindasvið:
Heiða Berglind Magnúsdóttir
Kr. 50.000,-

Hug- og félagsvísindasvið:
Ruth Margrét Friðriksdóttir
Kr. 50.000,-