Úthlutun úr Háskólasjóði KEA

Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA og Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri afhentu styrki úr Háskólasjóði KEA á Fullveldishátið Háskólans á Akureyri, þriðjudaginn 1. desember. Athöfnin fór fram í húsnæði háskólans.

Að þessu sinni voru veittir tólf rannsóknastyrkir en 22 umsóknir bárust sjóðnum. Halldór sagði í ræðu sinni að „góður háskóli verður ekki að veruleika öðruvísi en með metnaðarfullu rannsóknarstarfi.  Af umsóknun sem berast Háskólasjóði KEA má dæma að það er metnaður í rannsóknarstarfi skólans.” 

 Við úthlutun úr sjóðnum er horft til þess að verkefnin tengist starfsemi skólans eða samstarfsstofnana hans. Halldór sagði jafnramt „þá er leitað eftir verkefnum sem fela í sér aukin eða útvíkkuð tækifæri fyrir nemendur og starfsmenn.  Hin síðari ár hefur megin áhersla í styrkveitingum verið á rannsóknarverkefni en styrktarumgjörðin tekur til fleiri þátta.  Ekki er ólíklegt að næstu ár verði aukin áhersla lögð á aðra styrktarþætti þannig að stuðningur fáist við fjölþætt verkefni háskólans.”

Þetta er í þrettánda sinn sem úthlutað er úr Háskólasjóði KEA og var heildarupphæð styrkja 4,5 mkr. í ár. Frá því upphafleg samstarfsyfirlýsing KEA og Háskólans á Akureyri var undirrituð hefur verið ráðstafað tæpum 85 milljónum króna.

Eftirtalin rannsóknaverkefni fengu styrk úr Háskólasjóði KEA:

Lífshættir og áhættuhegðun unglinga í alþjóðlegum samanburði (ESPAD)
Hug- og félagsvísindasvið - Ársæll Már Arnarson prófessor. Kr. 400.000

Heimskautaréttarþingið 2016
Hug- og félagsvísindasvið - Guðmundur Alfreðsson, prófessor. Kr. 400.000

Áhrif verkjameðferða á þremur endurhæfingardeildum á Íslandi
Heilbrigðisvísindasvið - Hafdís Skúladóttir, lektor. Kr. 250.000

Stofna- og efnagreining á þörungum úr Mývatni
Viðskipta- og raunvísindasvið - Hjörleifur Einarsson, prófessor Kr. 400.000

Ráðstefna við Háskólann á Akureyri, Sjávarútvegur á norðurlandi
Viðskipta- og raunvísindasvið - Hörður Sævaldsson, lektor. Kr. 300.000

Námsefni í íslensku sem annað mál
Hug- og félagsvísindavið - Ingibjörg Sigurðardóttir, aðjúnkt. Kr. 400.000

Fjölmiðlanotkun íslenskra barna í alþjóðlegu samhengi
Hug- og félagsvísindasvið - Kjartan Ólafsson, lektor Kr. 400.000

Einstæðir ofurforeldrar- samræming fjölskyldur og atvinnulífs
Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri - Marta Einarsdóttir sérfræðingur. Kr. 300.000

The Arctic in the 21st Century
Hug- og félagsvísindasvið - Rachael Lorna Johnstone, prófessor. Kr. 400.000

Undirbúningur og virk þátttaka í Ráðstefnu um jarðskjálfta á Norðurlandi 2016
Ragnar Stefánsson, prófessor emeritus. Kr. 300.000

Hugleikur – samræður til náms
Hug- og félagsvísindasvið - Sólveig Zophaníasardóttir tók við styrk fyrir hönd Miðstöð skólaþróunar og kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Kr. 400.000 

Byggðaþróun á Íslandi í alþjóðlegu ljósi
Hug- og félagsvísindasvið - Þóroddur Bjarnason, prófessor. Kr. 400.000