Úthlutun úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA

Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA afhenti styrki úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA. Þetta er í 81. sinn sem KEA veitir styrki úr sjóðnum og fór úthlutunin fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri fimmtudaginn 27. nóvember. Auglýst var eftir umsóknum í september síðastliðnum og bárust 138 umsóknir. Veittir voru 34 styrkir, samtals að fjárhæð 6,25 milljón króna.

Úthlutað var úr fjórum styrkflokkum; almennum flokki, ungum afreksmönnum, þátttökuverkefnum og íþróttastyrkjum. Ellefu aðilar hlutu almennan styrk, hver að fjárhæð 150 þúsund krónur. Til ungra afreksmanna voru veittir tólf styrkir, 1,8 milljónir króna. Til þátttökuverkefna var úthlutað 1,4 milljón króna og hlutu fjórir aðilar styrk. Sjö íþróttastyrkir voru veittir, samtals 1,4 milljónir króna

 Almennir styrkir, hver styrkur kr. 150.000,-

  • Kammerkór Norðurlands  – Vegna vetrarstarfs kórsins en þar á meðal eru tvennir tónleikar í samstarfi við kammerkórinn Hljómeiki, sem haldnir verða í Langholtskirkju og á norðurlandi.
  • Lestrarfélag Hríseyjar - Til kaupa á bókum og skápum fyrir bókasafnið í Hrísey
  • Stúlknakór Akureyrarkirkju  – Kórinn er að safna fyrir tónleikaferð til Toscana á Ítalíu á næsta ári.
  • Iðnaðarsafnið á Akureyri – Til að taka viðtöl við fyrrum starfsmenn Sambandsins, KEA og fleiri fyrirtækja um störf þeirra innan fyrirtækjanna á sínum tíma.
  • Sumartónleikar í Akureyrarkirkju  – Til að fjármagna sumartónleika sem haldnir verða alla sunnudaga í júlí á næsta ári.
  • Kvenfélagið Tilraun – Til útgáfu á afmælisriti í tilefni af aldarafmæli kvenfélagsins.
  • Safnaklasi Eyjafjarðar – Til að halda samsýningu safna við Eyjafjörð í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri á næsta ári.
  • Kvæðamannafélagið Gefjun  – Til að halda þjóðlistahátíðina „Erfðir til framtíðar“ sem haldin verður á Akureyri næsta sumar.
  • Hermann Gunnar Jónsson – Til að gefa út bók um fjallgönguleiðir í Grýtubakkahreppi.
  • Listfræðslan  – Til kaupa á stólum fyrir einstaklinga sem eiga við stoðkerfisvandamál að stríða.
  • Kvenfélagasamband Suður Þingeyinga – Til viðhalds á Gamla Húsmæðraskólanum á Laugum í Reykjadal.

 Ungir afreksmenn, styrkupphæð 150.000.- kr

  • Alexander Smári Edelstein, píanó.
  • Alexandra Guðlaugsdóttir , kraftlyftingar.
  • Arna Sif Ásgrímsdóttir, knattspyrna.
  • Birta Fönn Sveinsdóttir, handbolti.
  • Einar Kristinn Kristgeirsson, skíði.
  • Magnús Finnsson, skíði.
  • Sigurður Reynisson, íshokkí.
  • Sigurður Unnar Hauksson, skotfimi.
  • Stefanía Daney Guðmundsdóttir, frjálsar íþróttir.
  • Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, golf.
  • Sveinborg Katla Daníelsdóttir, taekwondo/frjálsar íþróttir.
  • Ævarr Freyr Birgisson, blak/golf.

Íþróttastyrkir

  • Íþróttafélagið Völsungur, 3fl kk og kvk í fótbolta,  kr. 200.000 -Vegna þátttöku í fótboltamóti í Noregi næsta sumar.
  • Ungmennafélagið Narfi, kr. 100.000  - Til kaupa á áhöldum í Íþróttamiðstöðina í Hrísey fyrir börn og unglinga.
  • Barna- og unglingaráð Golfklúbbs Akureyrar, kr. 250.000 - Til að fjármagna æfingaferð erlendis fyrir 12-18 ára unglinga.
  • Unglingaráð Körfubolta Þórs, kr. 250.000 - Til að fjármagna kaup á skotklukku svo félagið geti haldið keppnismót í körfubolta.
  • Taekwondodeild Þórs, kr. 200.000 - Til almenns uppbyggingarstarfs deilarinnar sem legið hefur í dvala um nokkurt sekið.
  • Knattspyrnufélag Fjallabyggðar, kr. 200.000 - Til að kaupa búnað fyrir barna og unglingastarf félagsins.
  • Mammútar, kr. 200.000 -  Vegna þátttöku í   Evrópumóti í krullu í Hollandi.

 Þátttökuverkefni:
 

  • Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg,  kr. 200.000 - til áhaldakaupa til að fjölga iðkendum í yngstu aldurshópunum.
  • Minjasafnið á Akureyri, kr. 500.000 - til að taka saman myndir úr ljósmyndasafni Minjasafnsins og tengjast sögu KEA og gera þær aðgengilegar öllum í stafrænum gagnagrunni.
  • Vísindaskóli fyrir börn – Háskólinn á Akureyri, kr. 500.000. -  til að setja á stofn Vísindaskóla fyrir börn á aldrinum 11 -13 ára.
  • Kór Dalvíkurkirkju, kr. 200.000 - vegna útgáfu á söngdisk með Hátíðarsöngvum sr. Bjarna Þorsteinssonar.