Úthlutun úr Menningar- og viðurkenningasjóði

Nítján einstaklingar og félagasamtök tóku á móti styrkjum úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA í dag, Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, afhenti styrkina.

Úthlutað var úr flokki almennra styrkja og þátttökuverkefna samtals að upphæð 4,3 milljónir króna. 
Auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn í nóvember síðastliðnum og bárust 114 styrkumsóknir, 75 umsóknir í flokki almennra umsókna og 39 umsóknir um þátttökuverkefni.   Fjórtán aðilar hlutu almennan styrk hver að upphæð 150 þúsund og 5 aðilar hlutu þátttökustyrk, en til úthlutunar í þeim flokki voru 2,2 milljónir króna.
Flokkur almennra styrkja. Hver styrkur kr. 150.000,-. Eftirtaldir fengu úthlutun:  

•    Ólafur Kárason, vegna síldartónleika á Siglufirði 2009
•    Myndlistarfélagið, félag myndlistarmanna á Akureyri
•    Listalíf/Gísli Sigurgeirsson, vegna bókar og heimildarmyndar  
     um Sr. Pétur Þórarinssson
•    Kirkjukór Möðruvallaklaustursprestakalls, til tónleikahalds
•    Litla ljóðahátíðin, til að halda ljóðahátíð- Populus Tremula
•    Útgerðarminjasafnið á Grenivík, til að koma upp sýningu um   
     línuútgerð
•    Jassklúbbur Ólafsfjarðar, til að halda tónleikahátíð í Ólafsfirði
•    Ferðafélag Akureyrar og Ferðafélagið Hörgur, vegna gerðar
     gönguleiðakorts af Tröllaskaga
•    Stúlknakór Akureyrarkirkju, til að gefa út geisladisk
•    Karlakór Dalvíkur, vegna tónleikahalds
•    Bjarni E. Guðleifsson , vegna útgáfu bókarinnar „Á
     fjallatindum“
•    Davíð Hjálmar Haraldsson, vegna útgáfu ljóðabókar
•    Urðarkirkja Svarfaðardal, vegna endurbyggingar á kirkjunni
•    Brynjar Halldórsson, til útgáfu bókarinnar „Ættir Þingeyinga“

Eftirtaldir hlutu styrk úr flokki þátttökuverkefna:

•    Zophonías Jónmundsson, til endurbyggingar á
     fjallaskálanum á Dynjandisheiði
    - kr. 150.000.
•    Íþróttafélagið KA, til að bjóða atvinnulausu fólki upp á íþróttir
     og afþreyingu
    – kr. 500.000.
•    Amtsmannssetrið á Möðruvöllum, til uppbyggingar setursins
     – kr. 700.000.
•    Gestur Einar Jónasson, til að gera sjónvarpsmynd um líf og
     starf á Akureyrarflugvelli – kr. 150.000.
•    Náttúrusetrið á Húsabakka, vegna stofnunar setursins– kr.
     700.000.