KEA afhenti styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins þann 1. desember og fór styrkúthlutunin fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Var þetta í 90. skipti sem veitt er úr sjóðnum. Úthlutað var tæplega 24,7 milljónum króna til 60 aðila. Styrkúthlutun tók til þriggja flokka samkvæmt reglugerð sjóðsins: Menningar- og samfélagsverkefna, Íþrótta- og æskulýðsfélaga og Ungra afreksmanna.
Í flokknum Menningar- og samfélagsverkefni hlutu 22 aðilar styrki, alls 4,25 milljónir króna.
- Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, til að koma upp skúlptúrgarði við Alþýðuhúsið á Siglufirði
- Umskiptingar, til að setja upp brúðuleikhúsið "Töfrabækurnar"
- Menningarhúsið Berg, til sýningarhalds "Myndlist í Bergi"
- Safnasafnið, Alþýðulist Íslands, til að halda "Búningardag"
- Jón Haukur Unnarsson, til að halda fjöllistahátíðina "Mannfólkið breytist í slím"
- Flóra menningarhús, til kaupa á tækjum fyrir hljómflutning í húsinu
- Rósa María Stefánsdóttir, til að halda tónleikana "Ástarsæla" fyrir alla sem vilja rækta ástina
- Sesselía Ólafs, til að halda tónlistaruppistandið "Móðir, kona, meyja"
- Kristjana Arngrímsdóttir, til að halda útgáfutónleika "Ég hitti þig"
- Alexander Edelstein, til að hljóðrita píanóverk eftir Beethoven og Schumann
- Ásta Soffía Þorgeirsdóttir, til tónleikahalds
- Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis, til að auka þjónustu við krabbameinssjúka og aðstandendur
- Grófin Geðrækt, til kaupa á skjá, til að nota við kynningar, fræðslu og námskeiðahalds
- Dominique Gyða Sigrúnardóttir, vegna vinnusmiðju eldri borgara Dalvíkurbyggðar
- Félag eldri borgara Siglufirði, til að setja upp púttvöll fyrir eldri borgara
- AkureyrarAkademían, til að halda fræðandi fyrirlestra á hjúkrunar-og öldrunarheimilum
- Arfur Akureyrarbæjar, til að halda erindi um húsvernd og endurnýtingu mannvirkja
- Sigfús Ólafur Helgason fyrir hönd fyrrum sjómanna Útgerarfélags Akureyringa, til að smíða líkan af fimm fyrstu skuttogurum Útgerðarfélags Akureyringa
- Hraðið miðstöð nýsköpunar, til kaupa á saumavél í Fablabið á Húsavík
- Hælið, setur um sögu berklanna, til að bjóða 6. bekkingum á norðurlandi í heimsókn
- Rebekka Kristín Garðarsdóttir, til að koma upp merktum hlaupaleiðum í Kjarnaskógi
- Árný Þóra Ármannsdóttir, til að gera rannsókn um aðgengi fatlaðra að háskólanámi
Í flokki Íþróttastyrkja hlutu 21 aðilar styrki, samtals 17 milljónir króna.
- Íþróttafélagið Þór
- Knattspyrnufélag Akureyrar
- KA/Þór handbolti kvennaráð
- Þór/KA kvennaknattspyrna
- Fimleikafélag Akureyrar
- Golfklúbbur Akureyrar
- Skautafélag Akureyrar
- Skíðafélag Akureyrar
- Hestamannafélagið Léttir
- Hjólreiðafélag Akureyrar
- Íþróttafélagið Akur
- Sundfélagið Óðinn
- Ungmennafélagið Samherjar
- Dalvík/Reynir - Knattspyrnudeild m.fl. karla
- Meistaraflokkur kvenna Dalvik/Reynir
- Sundfélagið Rán
- Skíðafélag Dalvíkur
- Knattspyrnufélag Fjallabyggðar
- Skíðafélag Ólafsfjarðar
- Íþróttafélagið Völsungur
- Íþróttafélagið Magni
Í flokki ungra afreksmanna hlutu 17 aðilar styrk, samtals 3,4 milljónir króna.
- Andrea Ýr Ásmundsdóttir, golf
- Anna María Alfreðsdóttir, bogfimi
- Aron Bjarki Kristjánsson, blak/knattspyrna
- Birnir Vagn Finnsson, frjálsar íþróttir
- Eva Wium Elíasdóttir, körfubolti
- Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir, listskautar
- Veigar Heiðarsson, golf
- Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir, dans
- Skarphéðinn Ívar Einarsson, handbolti
- Sunneva Kjartansdóttir, dans
- Torfi Jóhann Sveinsson, skíði alpagreinar
- Björn Andri Sigfússon, hjólreiðar
- Lydía Gunnþórsdóttir, handbolti
- Sonja Lí Kristinsdóttir, skíði alpagreinar
- Valdimar Logi Sævarsson, knattspyrna
- Arnór Darri Kristinsson, hestaíþróttir
- Markús Orri Óskarsson, skák