Skilmálar KEA kortsins

KEA-kortið er félagsmanna- og afsláttarkort sem KEA gefur út og sendir félagsmönnum. Félagsgjaldið er kr. 500, í umsóknarferlinu kemur upp greiðslutengill. Eftir að umsókn er send inn og greiðsla félagsgjalds hefur borist, er hægt að sækja KEA appið eða fá kortið sent heim, það tekur að jafnaði tvo til fimm virka daga að fá kortið sent á lögheimili. KEA sendir kortið félagsmönnum að kostnaðarlausu. Ef félagsgjaldið er ekki greitt, fellur umsóknin niður. 

Allir lögráða einstaklingar sem eiga lögheimili á félagssvæðinu geta orðið fullgildir félagsmenn í KEA. Félagssvæði KEA nær frá og með Siglufirði í vestri, til og með Bakkafirði í austri. Einstaklingar undir lögræðisaldri, sem búsettir eru á félagssvæðinu, geta einnig orðið félagsmenn með ábyrgð forráðenda sinna og þeim takmörkunum varðandi trúnaðarstörf sem lög ákvarða.

Handhafi KEA-korts nýtur afsláttarins strax við afgreiðslu en kortið, sem ekki er greiðslumiðill, er merkt viðtakanda með nafni og kennitölu.  Á kortinu er strikamerki sem og segulrönd en þær upplýsingar sem þar eru geymdar eru ekki persónugerðar, sem þýðir að sömu upplýsingar eru geymdar í strikamerki og segulrönd allra korta og notkun þeirra því ekki hægt að tengja einstaka félagsmönnum.

Þegar að afgreiðslu kemur nægir í mörgum tilfellum að framvísa kortinu en í öðrum tilfellum er strikamerki skannað eða segulrönd lesin þannig að kortinu er rennt í gegnum posa.

Með því að gefa upp netfang er KEA veitt leyfi til útsendingar tölvupósta með tilboðum KEA kortsins og skoðanakannana er lúta að KEA og KEA kortinu sem og til annarra samskipta KEA eða á vegum KEA við félagsmenn. KEA heitir félagsmönnum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við skráningu í félagið og umsókn um KEA kortið. Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga má finna hér. Persónuupplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila án samþykkis félagsmanns nema þess sé krafist samkvæmt lögum eða í kjölfar dómsúrskurðar.

Mikilvægt er að félagsmenn kynni sér vel skilmála sem kynntir eru hér fyrir neðan.

  • KEA-kortið er eign KEA og varðar misnotkun á því við lög.
  • Kortið má sá einn nota sem það er gefið út á, í samræmi við gildandi reglur.
  • Glatist það er finnandi beðinn að skila því á skrifstofu KEA.
  • Við notkun skal félagsmaður ávallt vera undir það búinn að framvísa skilríkjum.
  • KEA-kortið er merkt félagsmönnum, en upplýsingar í segulrönd og strikamerki eru ekki persónugerðar þannig að ekki er um neina miðlæga upplýsingaskráningu varðandi kortanotkun að ræða.
  • Tilboðin sem kynnt eru hér á eftir gilda í verslunum á starfssvæði KEA nema að annað sé tekið fram.  
  • Viðskiptakjörin gilda ekki þegar um útsölur eða sértilboð hjá samstarfsaðilum er að ræða.
  • Þau kjör sem samstarfsaðilar bjóða kunna að breytast og verða slíkar breytingar kynntar hér á síðum KEA -kortsins.
  • Tilboð til viðskiptavina eru birt með fyrirvara um prentvillur.