Fréttir

Saga KEA í máli og myndum– aðgengileg á netinu

Í júní síðastliðnum sendi KEA frá sér margmiðlunardisk sem hefur að geyma 120 ára sögu félagsins í máli og myndum.  Diskurinn var þá sendur á heimili allra félagsmanna KEA og afhentur Minjasafninu á Akureyri, Iðnaðarsafninu, skólum og öðrum söfnum á svæðinu. Nú hefur efni disksins verið gert aðgengilegt hér í gegnum heimasíðu félagsins.  Hægt er að ferðast um tímaás og skoða, meðal annars, ljósmyndir, upplýsingar um fyrirtæki, deildir og vörur KEA, hápunkta tiltekinna tímabila og lifandi myndefni.

Góð þátttaka í Akureyrarhlaupi KEA

Akureyrarhlaup KEA fór fram á laugardaginn og alls voru þátttakendur í kringum 250. Mikil stemming var á vellinum þegar Jónsi stjórnaði upphitun og tók lagið.  Eftir hlaupin buðu svo Goði, Vífilfell og Greifinn hlaupurum í grill og fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna komu í hlut heppina þátttakenda.  Boðið var upp á fjórar vegalengdir, 3 og 5 km. hlaup án tímatöku og 10 km. og hálft maraþon með tímatöku.  

Akureyri handboltafélag og KEA undirrita styrktarsamning

Á föstudagskvöldið var haldinn opinn kynningarfundur Akureyrar – handboltafélags þar sem leikmenn voru kynntir, fjallað um mótafyrirkomulagið og þjálfarar spáðu í veturinn.  Við þetta tækifæri skrifuðu KEA og Akureyri - handboltafélag undir styrktarsamning sem gerir KEA af einum af bakhjörlum félagsins.

Akureyrarhlaup KEA

Akureyrarhlaup KEA fer fram laugardaginn 15. september, en hlaupið hefur verið haldið frá árinu 1992.  KEA og UFA rituðu fyrr í sumar undir samstarfssamning þess efnis að KEA styrkti framkvæmd hlaupsins næstu þrjú ár og er markmið samningsins meðal annars að efla hlaupið enn frekar og gera það að meiri viðburði en verið hefur.  Í tilefni dagsins býður Akureyrarsundlaug svo Akureyringum og gestum frítt í sund þennan dag.

Nýr samningur um Háskólasjóð KEA

Í dag skrifuðu Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA og Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans á Akureyri undir nýtt þriggja ára samkomulag um Háskólasjóð KEA. Fram að þessu hefur við úthlutanir verið horft til verkefna sem hafa verið viðbót við samþykkta starfsemi Háskólans á Akureyri og/eða samstarfsstofnana  hans.

Formleg opnun og opið hús hjá Saga Capital

Saga Capital Fjárfestingarbanki verður formlega opnaður í dag, föstudag, þegar Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra klippir á borða og vígir höfuðstöðvar bankans í Gamla barnaskólanum á Akureyri. Þetta gamla og glæsilega skólahús er ríflega hundrað ára gamalt og friðað að utan en hefur nú fengið nýtt hlutverk eftir gagngerar endurbætur. Saga Capital er alþjóðlegur fjárfestingarbanki, stofnaður af nokkrum fyrrverandi starfsmönnum íslensku viðskiptabankanna og völdum fagfjárfestum.

Samtök Atvinnnulífsins telja uppbyggingu Kjalvegar afskaplega mikilvæga framkvæmd

Kynntar hafa verið athuganir á gerð svokallaðs Norðurvegar. Veginum er ætlað að liggja frá Gullfossi um Kjöl milli Hofsjökuls og Langjökuls og tengjast hringveginum við Silfrastaði í Skagafirði. Sjá meira á www.nordurvegur.is

Sumarskóli RES og SIT – Fimmtán nemendur frá Bandaríkjunum á Akureyri

Nemendur á vegum Sumarskóla RES og School for International Training(SIT) hafa verið á Íslandi frá 11. júní sl. Hópurinn samanstendur afnemendum frá ýmsum háskólum í Bandaríkjunum og sækja þeir allir sjövikna námskeið sem ber heitið "Renewable Energy, Technology, andResource Economics" auk þess sem þeir sækja námskeið í íslensku. Sjá meira á www.res.is

KEA og UFA gera samning um Akureyrarhlaupið

Forsvarsmenn KEA og UFA undirrituðu í dag þriggja ára samstarfssamning vegna árlegs Akureyrarhlaups.  KEA mun verða aðalstyrktaraðili hlaupsins næstu þrjú ár og mun hlaupið heita Akureyrarhlaup KEA.

Frost tekur að sér stórt verkefni í Færeyjum

Kælismiðjan Frost ehf. hefur samið við Vestmanna Fiskavirki p/f um hönnun, afhendingu og uppsetningu á frysti og kælibúnaði fyrir nýja fiskvinnslu og 3000 tonna frystigeymslu í Vestmanna í Færeyjum.